
Gáru demants eyrnalokkar
JE-616-R-DE-S-10p
Eyrnalokkarnir eru í Gárulínu jens. Lokkarnir eru handsmíðaðir úr 14 karata rósagulli með tveimur 5 punkta demöntum samtals 10 punktar í TW VVS1 gæðum.
Þegar talað er um stærð (og þar með þyngd) demanta er ýmist notast við karöt eða punkta. 10 punkta demantur er 0,1 karöt, en kerfið er keimlíkt metrakerfinu á þann hátt að 100 punktar eru samtals 1 karat.
Þvermál lokkanna er um 12 mm eða stærð S.
Hönnuður er Berglind Snorra.
Netpantanir eru að jafnaði afgreiddar næsta virka dag frá kaupum. Ef pöntuð er áletrun á hlut lengist afgreiðslufresturinn um fimm virka daga. Þú færð tölvupóst frá okkur um leið og pöntunin er tilbúin til afhendingar í verslunum okkar eða þegar við komum henni í hendur flutningsaðila sem sér um að koma pöntuninni á áfangastað.