Skilmálar vöruskipta

Að skipta og skila vöru
Viðskiptavinur getur skipt vöru ef vara er óskemmd og óopnuð, í upprunalegum umbúðum, og ábyrgðarmiði fylgir með. Kostnaður við endursendingu er á ábyrgð kaupanda. Almennur skiptifrestur á vörum er 30 dagar, og við vöruskil er ekki boðið uppá endurgreiðslu heldur inneignarnótu. Undantekning frá þessari reglu varðar netpantanir, en viðskiptavinir sem panta vörur í gegnum vefverslun geta óskað eftir fullri endurgreiðslu innan 14 daga frá móttöku sendingar. 

Ábyrgðarskilmálar
Ef vara telst gölluð munum við gera við hana eða skipta henni, án kostnaðar fyrir viðskiptavini. Athugið að ábyrgðin nær ekki til tjóns sem hlýst af slysi, vanrækslu eða venjulegu sliti sem verður við notkun og eða sökum aldurs vörunnar. Telji viðskiptavinur að vara sé gölluð skal hætta notkun, ganga frá gripnum á öruggan stað og koma honum til skoðunar í verslunum eða á verkstæði Jens, ásamt kvittun til staðfestingar á kaupunum.

Fyrir frekari upplýsingar er vísað til viðskiptaskilmála okkar.

Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.