Skartgripasápa
Skartgripasápa

Skartgripasápa

skartgripasapa

Skartgripasápan frá Jens fjarlægir óhreinindi af yfirborði skartgripa. Sápan hentar sérstaklega vel skartgripum með glitrandi steina eins og t.d. demanta eða Cubic Zirconia, því sápan getur einnig fjarlægt óhreinindi undan steinum í fatningum og þá glitra þeir meira. Mjúkur bursti fylgir með sem einfaldar hreinsun á stöðum sem erfitt er að komast að. Skartgripasápan er 100% náttúruvæn og hana má nota á allar gerðir málma og steina, þar með talið gull, hvítagull, silfur, stál, demanta og perlur. Við mælum með að nota hreinsiklútinn frá Jens eftir hreinsun til að fá bestu útkomuna. 

Ef þú kaupir skartgripasápu og hreinsiklút færðu settið á 2.500 kr. (450 kr. afsláttur). 

Fullt verð 1.990 kr.
/

Netpantanir eru að jafnaði afgreiddar næsta virka dag frá kaupum. Ef pöntuð er áletrun á hlut lengist afgreiðslufresturinn um fimm virka daga. Þú færð tölvupóst frá okkur um leið og pöntunin er tilbúin til afhendingar í verslunum okkar eða þegar við komum henni í hendur flutningsaðila sem sér um að koma pöntuninni á áfangastað.

This site is protected by reCAPTCHA and the Google Privacy Policy and Terms of Service apply.

Skínandi fínt, alltaf!

Nú er einfalt að halda skartgripunum þínum skínandi fínum.

Skartgripasápan okkar er úr 100% náttúrulegum efnum og hana má nota á allar tegundir málma og steina. Við mælum sérstaklega með þessari sápu fyrir eigendur demantshringa.

Silfurdippið er kjörið þegar hreinsa þarf silfurkeðjur og -men.


Nýlega skoðað

Allt í stáli

Stál er harður málmur sem hentar síður til handsmíði en gull og silfur.

Stálskartgripir eru hinsvegar oft mun hagkvæmari í verði en gull- og silfurskartgripir vegna þess að þeir eru vélsmíðaðir í miklu magni.

Við bjóðum vandaða stálskartgripi frá framleiðendum sem sérhæfa sig í slíkri smíði.

Skoða úrval