Skrautsteinar - bók
Skrautsteinar - bók
Skrautsteinar - bók

Skrautsteinar - bók

skrautsteinar

Vönduð og efnismikil bók um allt það helsta sem snertir gimsteina, kristalla og aðra skrautsteina. Í bókinni eru 800 ljósmyndir og greinargóður texti sem útskýra uppruna, útlit og eðli þessara eftirsóttu náttúruefna á aðgengilegan máta. Þar er einnig að finna litalykla sem ættu að hjálpa áhugafólki að greina á milli skrautsteinategunda.

130 tegundir gimsteina og annarra skrautsteina eru sérstaklega til umfjöllunar í bókinni. Farið er yfir muninn á náttúrusteinum, gervisteinum og eftirlíkingum, auk þess sem farið er yfir helstu tegundir eðalmálma. 

Ari Trausti Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur, rithöfundur og sjónvarpsmaður, þýddi og staðfærði bókina eftir danskri og breskri útgáfu sem unnin var í samvinnu við British Museum of Natural History. 

Yfirgripsmikil bók sem allt áhugafólk um skrautsteina ætti að hafa gaman af að lesa.

Fullt verð 3.990 kr.
/

Netpantanir eru að jafnaði afgreiddar næsta virka dag frá kaupum. Ef pöntuð er áletrun á hlut lengist afgreiðslufresturinn um fimm virka daga. Þú færð tölvupóst frá okkur um leið og pöntunin er tilbúin til afhendingar í verslunum okkar eða þegar við komum henni í hendur flutningsaðila sem sér um að koma pöntuninni á áfangastað.

This site is protected by reCAPTCHA and the Google Privacy Policy and Terms of Service apply.

Skínandi fínt, alltaf!

Nú er einfalt að halda skartgripunum þínum skínandi fínum.

Skartgripasápan okkar er úr 100% náttúrulegum efnum og hana má nota á allar tegundir málma og steina. Við mælum sérstaklega með þessari sápu fyrir eigendur demantshringa.

Silfurdippið er kjörið þegar hreinsa þarf silfurkeðjur og -men.


Nýlega skoðað

Allt í stáli

Stál er harður málmur sem hentar síður til handsmíði en gull og silfur.

Stálskartgripir eru hinsvegar oft mun hagkvæmari í verði en gull- og silfurskartgripir vegna þess að þeir eru vélsmíðaðir í miklu magni.

Við bjóðum vandaða stálskartgripi frá framleiðendum sem sérhæfa sig í slíkri smíði.

Skoða úrval