Perlueyrnalokkar

Perlueyrnalokkar

PE-103-S

Eyrnalokkarnir eru úr rhodiumhúðuðu silfri með ferskvatnsperlum sem eru í tveimur stærðum 4-5 mm og 5-6 mm.

Umhirða perlna
Það er einkum tvennt sem þarf að gæta að til að tryggja fallega ásýnd og gæði perlna. 

  • Ekki skola þær með heitu vatni.
  • Ekki láta perlurnar komast í snertingu við sýrur.

Í sumum gerðum perluskartgripa er notað sérstakt perlulím til að festa perlur í gripinn. Gæta skal þess að perlur komist ekki í snertingu við heitt vatn, hvorki við þrif eða þegar farið er í sturtu. Heitt vatn dregur úr styrk límingar og getur valdið því að perlan detti úr gripnum. 

Gæta skal þess að perlur komist ekki í snertingu við efni sem innihalda sýrur, eins og t.d. ilmvatn og hársprey. Ef slíkt gerist skal skola perlurnar með köldu vatni. Sýru er einnig að finna, í mismiklu mæli, í húð fólks. Langvarandi snerting perlna við húð með hátt sýrustig getur haft skaðleg áhrif, og þess vegna er gott að þrífa perlur reglulega.

Við mælum sérstaklega með skartgripasápunni okkar til að viðhalda gæðum og ásýnd perlna. Sápan er 100% náttúruvæn og hana má nota á allar gerðir málma og steina, þar með talið gull, hvítagull, silfur, stál, demanta og auðvitað perlur.

Fullt verð 18.900 kr.
/

Netpantanir eru að jafnaði afgreiddar næsta virka dag frá kaupum. Ef pöntuð er áletrun á hlut lengist afgreiðslufresturinn um fimm virka daga. Þú færð tölvupóst frá okkur um leið og pöntunin er tilbúin til afhendingar í verslunum okkar eða þegar við komum henni í hendur flutningsaðila sem sér um að koma pöntuninni á áfangastað.

This site is protected by reCAPTCHA and the Google Privacy Policy and Terms of Service apply.

Skínandi fínt, alltaf!

Nú er einfalt að halda skartgripunum þínum skínandi fínum.

Skartgripasápan okkar er úr 100% náttúrulegum efnum og hana má nota á allar tegundir málma og steina. Við mælum sérstaklega með þessari sápu fyrir eigendur demantshringa.

Silfurdippið er kjörið þegar hreinsa þarf silfurkeðjur og -men.


Nýlega skoðað

Allt í stáli

Stál er harður málmur sem hentar síður til handsmíði en gull og silfur.

Stálskartgripir eru hinsvegar oft mun hagkvæmari í verði en gull- og silfurskartgripir vegna þess að þeir eru vélsmíðaðir í miklu magni.

Við bjóðum vandaða stálskartgripi frá framleiðendum sem sérhæfa sig í slíkri smíði.

Skoða úrval