Demantshringur
JR-523-G-54-10p
Hringurinn er handsmíðaður úr 14 karata gulli með sjö demöntum samtals 10 punktar í GH SI1 gæðum. Hringurinn er með hraunáferð og fer vel á fingri einn og sér en er líka fallegur við hliðina á plain/einföldum hring.
Þegar talað er um stærð (og þar með þyngd) demanta er ýmist notast við karöt eða punkta. 10 punkta demantur er 0,1 karöt, en kerfið er keimlíkt metrakerfinu á þann hátt að 100 punktar eru samtals 1 karat.
Viltu fá tilkynningu þegar varan kemur aftur?
Netpantanir eru að jafnaði afgreiddar næsta virka dag frá kaupum. Ef pöntuð er áletrun á hlut lengist afgreiðslufresturinn um fimm virka daga. Þú færð tölvupóst frá okkur um leið og pöntunin er tilbúin til afhendingar í verslunum okkar eða þegar við komum henni í hendur flutningsaðila sem sér um að koma pöntuninni á áfangastað.