Silfurhringur með íslenskum steini
JR-514-S-KA-50
Hringurinn er handsmíðaður úr hvítagullshúðuðu silfri með íslenskum kalsidon steini. Breiðasti hluti hringsins er um 15 mm.
Ath. varðandi íslenska kalsidon steininn: hver steinn er einstakur og lítur því ekki nákvæmlega eins út og á myndinni. Ástæðan er sú að steinarnir eru mótaðir af náttúrunni. Það eru litbrigði þannig að hvíti liturinn getur verið mis hvítur eða gegnsær, þessi litbrigði geta komið fram í einum og sama steininum.
Hönnuður og smiður er Jón Snorri Sigurðsson.
Netpantanir eru að jafnaði afgreiddar næsta virka dag frá kaupum. Ef pöntuð er áletrun á hlut lengist afgreiðslufresturinn um fimm virka daga. Þú færð tölvupóst frá okkur um leið og pöntunin er tilbúin til afhendingar í verslunum okkar eða þegar við komum henni í hendur flutningsaðila sem sér um að koma pöntuninni á áfangastað.
