
Demantshálsmen - Eilífð
JP-645-G-DE-5p
Hálsmenið er handsmíðað úr 14 karata gulli með 5 punkta demanti í TW VS1 gæðum. Formið er innblásið frá eilífðartákninu.
Þegar talað er um stærð (og þar með þyngd) demanta er ýmist notast við karöt eða punkta. 5 punkta demantur er 0,05 karöt, en kerfið er keimlíkt metrakerfinu á þann hátt að 100 punktar eru samtals 1 karat.
Hönnuðir og smiðir eru Berglind Snorra og Jón Snorri Sigurðsson.
Netpantanir eru að jafnaði afgreiddar næsta virka dag frá kaupum. Ef pöntuð er áletrun á hlut lengist afgreiðslufresturinn um fimm virka daga. Þú færð tölvupóst frá okkur um leið og pöntunin er tilbúin til afhendingar í verslunum okkar eða þegar við komum henni í hendur flutningsaðila sem sér um að koma pöntuninni á áfangastað.