Hálsmen með íslenskum steini
JP-174-S-KA
Hálsmenið er handsmíðað úr rhodiumhúðuðu silfri með íslenskum kalsidon steini. Steinninn er mótaður af náttúrunni svo engir tveir eru eins og þess vegna ekki hægt að fá nákvæmlega eins stein og er á myndunum.
Ath. varðandi íslenska kalsidon steininn: hver steinn er einstakur og lítur því ekki nákvæmlega eins út og á myndinni. Ástæðan er sú að steinninn er mótaður af náttúrunni. Það eru litbrigði þannig að hvíti liturinn getur verið mis hvítur eða gegnsær, þessi litbrigði geta komið fram í einum og sama steininum.
Hönnuður og smiður er Jón Snorri Sigurðsson.
Netpantanir eru að jafnaði afgreiddar næsta virka dag frá kaupum. Ef pöntuð er áletrun á hlut lengist afgreiðslufresturinn um fimm virka daga. Þú færð tölvupóst frá okkur um leið og pöntunin er tilbúin til afhendingar í verslunum okkar eða þegar við komum henni í hendur flutningsaðila sem sér um að koma pöntuninni á áfangastað.
