Gulleyrnalokkar með íslenskum steinum
JE-682-G-KA
Eyrnalokkarnir eru handsmíðaðir úr 14 karata gulli með íslenskum kalsidon steinum. Lokkarnir eu um 12 mm á hæð.
Ath. varðandi íslensku kalsidon steinana: hver steinn er einstakur og lítur því ekki nákvæmlega eins út og á myndinni. Ástæðan er sú að steinarnir eru mótaðir af náttúrunni. Það eru litbrigði þannig að hvíti liturinn getur verið mis hvítur eða gegnsær, þessi litbrigði geta komið fram í einum og sama steininum. Við pörum steinana saman svo þeir séu sem líkastir í hverju eyrnalokka pari.
Hönnuðir og smiðir eru Berglind Snorra og Jón Snorri Sigurðsson.
Netpantanir eru að jafnaði afgreiddar næsta virka dag frá kaupum. Ef pöntuð er áletrun á hlut lengist afgreiðslufresturinn um fimm virka daga. Þú færð tölvupóst frá okkur um leið og pöntunin er tilbúin til afhendingar í verslunum okkar eða þegar við komum henni í hendur flutningsaðila sem sér um að koma pöntuninni á áfangastað.
