
Gáru demants eyrnalokkar
JE-616-G-DE-S-10p
Eyrnalokkarnir eru í Gárulínu jens. Lokkarnir eru handsmíðaðir úr 14 karata gulli með tveimur 5 punkta demöntum samtals 10 punktar í TW VVS1 gæðum.
Þegar talað er um stærð (og þar með þyngd) demanta er ýmist notast við karöt eða punkta. 10 punkta demantur er 0,1 karöt, en kerfið er keimlíkt metrakerfinu á þann hátt að 100 punktar eru samtals 1 karat.
Þvermál lokkanna er um 12 mm eða stærð S.
Hönnuður er Berglind Snorra.
Netpantanir eru að jafnaði afgreiddar næsta virka dag frá kaupum. Þú færð tölvupóst frá okkur um leið og pöntunin er tilbúin til afhendingar í verslunum okkar eða þegar við komum henni í hendur flutningsaðila sem sér um að koma pöntuninni á áfangastað.