Gullarmband með íslenskum steini
JB-527-G-KA
Armbandið er handsmíðað úr 14 karata gulli með kalsidon steini. Lengd armbandsins er stillanleg frá 20,5 cm - 22 cm.
Ath. varðandi íslenska kalsidon steininn: hver steinn er einstakur og lítur því ekki nákvæmlega eins út og á myndinni. Ástæðan er sú að steinninn er mótaður af náttúrunni. Það eru litbrigði þannig að hvíti liturinn getur verið mis hvítur eða gegnsær, þessi litbrigði geta komið fram í einum og sama steininum.
Hönnuðir og smiðir eru Berglind Snorra og Jón Snorri Sigurðsson.
Netpantanir eru að jafnaði afgreiddar næsta virka dag frá kaupum. Ef pöntuð er áletrun á hlut lengist afgreiðslufresturinn um fimm virka daga. Þú færð tölvupóst frá okkur um leið og pöntunin er tilbúin til afhendingar í verslunum okkar eða þegar við komum henni í hendur flutningsaðila sem sér um að koma pöntuninni á áfangastað.
