![Hurðaskjöldur - Jens](http://www.jens.is/cdn/shop/products/Hurdarskjoldur-abstract_{width}x.jpg?v=1584975832)
Hurðarskjöldur
SD-01
Hurðarskjöldurinn er handunninn úr eðalstáli og fylgir honum áletrun og einnig skrúfur og tappar. Falleg skreyting á útidyrahurðina og tilvalin innflutnings- eða brúðkaupsgjöf. Málin eru 12 cm á breidd og 8 cm á hæð. Hönnuðir eru Berglind Snorra og Jón Snorri Sigurðsson.
Netpantanir eru að jafnaði afgreiddar næsta virka dag frá kaupum. Ef pöntuð er áletrun á hlut lengist afgreiðslufresturinn um fimm virka daga. Þú færð tölvupóst frá okkur um leið og pöntunin er tilbúin til afhendingar í verslunum okkar eða þegar við komum henni í hendur flutningsaðila sem sér um að koma pöntuninni á áfangastað.