Demantshringur
JR-521-G-56-25p
Hringurinn er handsmíðaður úr 14 karata gulli með fimm demöntum sem eru samtals 25 punktar í TW VS1 gæðum. Hringurinn fer vel á fingri einn og sér en er líka fallegur við hliðina á giftingahringnum.
Þegar talað er um stærð (og þar með þyngd) demanta er ýmist notast við karöt eða punkta. 25 punkta demantur er 0,25 karöt, en kerfið er keimlíkt metrakerfinu á þann hátt að 100 punktar eru samtals 1 karat.
- Um demanta
Það eru einkum fjórir þættir sem hafa áhrif á ásýnd, gæði og verð demanta. Hér neðar er örstutt samantekt, og við hvetjum þig til að lesa meira um demanta með því að smella hér.
- Caröt: Þau segja til um þyngd þeirra (og þar með stærð). Hér á landi er þyngd demanta iðullega talin í punktum frekar en carötum. 1 carat jafngildir 100 punktum. Þannig að þegar gullsmiðir tala um 10 punkta demant, þá er hann 0,1 carat.
- Litbrigði: Því hvítari sem demantur er, því verðmætari er hann. Litbrigði demanta eru stundum skilgreind með notkun bókstafa við notum upprunalegu litbrigðaheiti demanta í okkar vörulýsingum.
- Hreinleiki: Því hreinni sem demantur er, því skærar skín hann og því verðmætari telst hann. Í stuttu máli fer hreinleikaflokkunin eftir því hve erfitt eða auðvelt er að greina óhreinindi. Ef færir demantasérfræðingar eiga erfitt með að greina óhreinindi við tífalda stækkun í smásjá, þá lenda demantar í háum gæðaflokki. Ef óhreinindin eru slík að auðvelt sé að greina þau við tífalda stækkun eða jafnvel með berum augum, þá enda demantarnir í lágum gæðaflokki.
- Skurður: Langalgengast að notaðir séu demantar með hringlaga skurði sem kallast „brillíant“. Vissulega eru aðrir skurðir notaðir, en það sjaldgæfara, og þá einna helst þegar um er að ræða sérpantanir, a.m.k. í okkar tilfelli.
Viltu fá tilkynningu þegar varan kemur aftur?
Netpantanir eru að jafnaði afgreiddar næsta virka dag frá kaupum. Ef pöntuð er áletrun á hlut lengist afgreiðslufresturinn um fimm virka daga. Þú færð tölvupóst frá okkur um leið og pöntunin er tilbúin til afhendingar í verslunum okkar eða þegar við komum henni í hendur flutningsaðila sem sér um að koma pöntuninni á áfangastað.