Demantshringur
Demantshringur
Demantshringur
Demantshringur
Demantshringur

Demantshringur

JR-052-H-48

Hringurinn er smíðaður úr 14 karata hvítagulli með fimmtán demöntum sem eru samtals 22 punktar í GH SI1 gæðum. Hringurinn fer vel á fingri einn og sér en er líka fallegur við hliðina á plain/einföldum hring.

Þegar talað er um stærð (og þar með þyngd) demanta er ýmist notast við karöt eða punkta. 22 punkta demantur er 0,22 karöt, en kerfið er keimlíkt metrakerfinu á þann hátt að 100 punktar eru samtals 1 karat. 

Um demanta

Það eru einkum fjórir þættir sem hafa áhrif á ásýnd, gæði og verð demanta. Hér neðar er örstutt samantekt, og við hvetjum þig til að lesa meira um demanta með því að smella hér.

  1. Caröt: Þau segja til um þyngd þeirra (og þar með stærð). Hér á landi er þyngd demanta iðullega talin í punktum frekar en carötum. 1 carat jafngildir 100 punktum. Þannig að þegar gullsmiðir tala um 10 punkta demant, þá er hann 0,1 carat.
  2. Litbrigði: Því hvítari sem demantur er, því verðmætari er hann. Litbrigði demanta eru stundum skilgreind með notkun bókstafa við notum upprunalegu litbrigðaheiti demanta í okkar vörulýsingum.
  3. Hreinleiki: Því hreinni sem demantur er, því skærar skín hann og því verðmætari telst hann. Í stuttu máli fer hreinleikaflokkunin eftir því hve erfitt eða auðvelt er að greina óhreinindi. Ef færir demantasérfræðingar eiga erfitt með að greina óhreinindi við tífalda stækkun í smásjá, þá lenda demantar í háum gæðaflokki. Ef óhreinindin eru slík að auðvelt sé að greina þau við tífalda stækkun eða jafnvel með berum augum, þá enda demantarnir í lágum gæðaflokki.
  4. Skurður: Langalgengast að notaðir séu demantar með hringlaga skurði sem kallast „brillíant“. Vissulega eru aðrir skurðir notaðir, en það sjaldgæfara, og þá einna helst þegar um er að ræða sérpantanir, a.m.k. í okkar tilfelli.
Stærð
Fullt verð 139.900 kr.
/

Netpantanir eru að jafnaði afgreiddar næsta virka dag frá kaupum. Ef pöntuð er áletrun á hlut lengist afgreiðslufresturinn um fimm virka daga. Þú færð tölvupóst frá okkur um leið og pöntunin er tilbúin til afhendingar í verslunum okkar eða þegar við komum henni í hendur flutningsaðila sem sér um að koma pöntuninni á áfangastað.

This site is protected by hCaptcha and the hCaptcha Privacy Policy and Terms of Service apply.

Skínandi fínt, alltaf!

Nú er einfalt að halda skartgripunum þínum skínandi fínum.

Skartgripasápan okkar er úr 100% náttúrulegum efnum og hana má nota á allar tegundir málma og steina. Við mælum sérstaklega með þessari sápu fyrir eigendur demantshringa.

Silfurdippið er kjörið þegar hreinsa þarf silfurkeðjur og -men.


Nýlega skoðað

Allt í stáli

Stál er harður málmur sem hentar síður til handsmíði en gull og silfur.

Stálskartgripir eru hinsvegar oft mun hagkvæmari í verði en gull- og silfurskartgripir vegna þess að þeir eru vélsmíðaðir í miklu magni.

Við bjóðum vandaða stálskartgripi frá framleiðendum sem sérhæfa sig í slíkri smíði.

Skoða úrval