Perlu- og demantseyrnalokkar
PE-106-G-Akoya
Eyrnalokkarnir eru úr 14 karata gulli með perlum og demöntum. Perlurnar eru kringlóttar akoya perlur sem eru 8,5-9 mm í þvermál. Demantarnir eru 18 talsins og eru samtals 13 punktar í gæðaflokki W SI.
Þegar talað er um stærð (og þar með þyngd) demanta er ýmist notast við karöt eða punkta. 13 punkta demantur er 0,13 karöt, en kerfið er keimlíkt metrakerfinu á þann hátt að 100 punktar eru samtals 1 karat.
Netpantanir eru að jafnaði afgreiddar næsta virka dag frá kaupum. Ef pöntuð er áletrun á hlut lengist afgreiðslufresturinn um fimm virka daga. Þú færð tölvupóst frá okkur um leið og pöntunin er tilbúin til afhendingar í verslunum okkar eða þegar við komum henni í hendur flutningsaðila sem sér um að koma pöntuninni á áfangastað.