Silfurhringur
Silfurhringur

Silfurhringur

JR-618-S-SA-50

Hringurinn er í Gárulínu jens og er handsmíðaður úr rhodiumhúðuðu silfri með safír steini. Hringurinn er mjög nettur, um 1 mm á breidd. 

Hönnuður og smiður er Berglind Snorra.

Skoðaðu allt Gáru úrvalið með því að smella hér.

Gárulínan

Skartgripir eru gjarnan keyptir við tímamót í lífi fólks, og þeim ætlað að vera einskonar "minnisvarði" um ákveðna atburð. Við vildum finna leið til að gera fólki kleift að gera skartgripi enn persónlegri, og niðurstaðan úr þeirri vegferð var Gárulínan.

Gárur á vatni myndast við ákveðinn atburð, eins og þegar steinn snertir yfirborð þess. Þó steinninn sé sokkinn eru gárurnar enn sýnilegar og til marks um atburðinn sjálfan. Þaðan var innblástur okkar fenginn - Hver gára táknar ákveðinn atburð í lífi okkar.

Fyrstu gripirnir í þessari skartgripalínu voru Gáruhálsmen sem fást í fjórum stærðum, en hönnunin er þannig að ólíkar stærðir af Gárum geta fallið hver inn í aðra. Gáruhálsmen getur verið ein Gára eða allt að fjórar, og auðvelt er að bæta við nýrri Gáru síðar. Smelltu hér til að hanna þína Gáru

Gárurnar fást í silfri og 14 karata gulli og eru þær ýmist með eða án skrautsteina. Auk hálsmena er einnig hægt að fá hringa, eyrnalokka og armbönd í Gárulínunni. Skoða skartgripalínuna Gárur

Stærð
Fullt verð 10.900 kr.
/

Netpantanir eru að jafnaði afgreiddar næsta virka dag frá kaupum. Ef pöntuð er áletrun á hlut lengist afgreiðslufresturinn um fimm virka daga. Þú færð tölvupóst frá okkur um leið og pöntunin er tilbúin til afhendingar í verslunum okkar eða þegar við komum henni í hendur flutningsaðila sem sér um að koma pöntuninni á áfangastað.

This site is protected by hCaptcha and the hCaptcha Privacy Policy and Terms of Service apply.

Skínandi fínt, alltaf!

Nú er einfalt að halda skartgripunum þínum skínandi fínum.

Skartgripasápan okkar er úr 100% náttúrulegum efnum og hana má nota á allar tegundir málma og steina. Við mælum sérstaklega með þessari sápu fyrir eigendur demantshringa.

Silfurdippið er kjörið þegar hreinsa þarf silfurkeðjur og -men.


Nýlega skoðað

Allt í stáli

Stál er harður málmur sem hentar síður til handsmíði en gull og silfur.

Stálskartgripir eru hinsvegar oft mun hagkvæmari í verði en gull- og silfurskartgripir vegna þess að þeir eru vélsmíðaðir í miklu magni.

Við bjóðum vandaða stálskartgripi frá framleiðendum sem sérhæfa sig í slíkri smíði.

Skoða úrval