Perlu- og demantshálsmen
PP-101-G-1P
Hálsmenið er úr 14 karata gulli með perlu og demöntum. Perlan er akoya perla sem er 7-7,5 mm. Demantarnir eru 4 talsins og eru samtals 1 punktur í gæðaflokki W SI.
Þegar talað er um stærð (og þar með þyngd) demanta er ýmist notast við karöt eða punkta. 1 punkta demantur er 0,01 karat, en kerfið er keimlíkt metrakerfinu á þann hátt að 100 punktar eru samtals 1 karat.
Umhirða perlna
Það er einkum tvennt sem þarf að gæta að til að tryggja fallega ásýnd og gæði perlna.
- Ekki skola þær með heitu vatni.
- Ekki láta perlurnar komast í snertingu við sýrur.
Í sumum gerðum perluskartgripa er notað sérstakt perlulím til að festa perlur í gripinn. Gæta skal þess að perlur komist ekki í snertingu við heitt vatn, hvorki við þrif eða þegar farið er í sturtu. Heitt vatn dregur úr styrk límingar og getur valdið því að perlan detti úr gripnum.
Gæta skal þess að perlur komist ekki í snertingu við efni sem innihalda sýrur, eins og t.d. ilmvatn og hársprey. Ef slíkt gerist skal skola perlurnar með köldu vatni. Sýru er einnig að finna, í mismiklu mæli, í húð fólks. Langvarandi snerting perlna við húð með hátt sýrustig getur haft skaðleg áhrif, og þess vegna er gott að þrífa perlur reglulega.
Við mælum sérstaklega með skartgripasápunni okkar til að viðhalda gæðum og ásýnd perlna. Sápan er 100% náttúruvæn og hana má nota á allar gerðir málma og steina, þar með talið gull, hvítagull, silfur, stál, demanta og auðvitað perlur.
- Umhirða perlna
- Um demanta

Það eru einkum fjórir þættir sem hafa áhrif á ásýnd, gæði og verð demanta. Hér neðar er örstutt samantekt, og við hvetjum þig til að lesa meira um demanta með því að smella hér.
- Caröt: Þau segja til um þyngd þeirra (og þar með stærð). Hér á landi er þyngd demanta iðullega talin í punktum frekar en carötum. 1 carat jafngildir 100 punktum. Þannig að þegar gullsmiðir tala um 10 punkta demant, þá er hann 0,1 carat.
- Litbrigði: Því hvítari sem demantur er, því verðmætari er hann. Litbrigði demanta eru stundum skilgreind með notkun bókstafa við notum upprunalegu litbrigðaheiti demanta í okkar vörulýsingum.
- Hreinleiki: Því hreinni sem demantur er, því skærar skín hann og því verðmætari telst hann. Í stuttu máli fer hreinleikaflokkunin eftir því hve erfitt eða auðvelt er að greina óhreinindi. Ef færir demantasérfræðingar eiga erfitt með að greina óhreinindi við tífalda stækkun í smásjá, þá lenda demantar í háum gæðaflokki. Ef óhreinindin eru slík að auðvelt sé að greina þau við tífalda stækkun eða jafnvel með berum augum, þá enda demantarnir í lágum gæðaflokki.
- Skurður: Langalgengast að notaðir séu demantar með hringlaga skurði sem kallast „brillíant“. Vissulega eru aðrir skurðir notaðir, en það sjaldgæfara, og þá einna helst þegar um er að ræða sérpantanir, a.m.k. í okkar tilfelli.
Netpantanir eru að jafnaði afgreiddar næsta virka dag frá kaupum. Ef pöntuð er áletrun á hlut lengist afgreiðslufresturinn um fimm virka daga. Þú færð tölvupóst frá okkur um leið og pöntunin er tilbúin til afhendingar í verslunum okkar eða þegar við komum henni í hendur flutningsaðila sem sér um að koma pöntuninni á áfangastað.