
5 mm giftingarhringur með demanta stjörnuhimni
JR-505-H-17p-50
Hringurinn er handsmíðaður úr 14 karata hvítagulli og er 5 mm á breidd. Í hringnum eru sjö demantar alls 17 punktar í TW VVS1 gæðum, svo þeir eru bjartir á litinn og tærir.
Þegar talað er um stærð (og þar með þyngd) demanta er ýmist notast við karöt eða punkta. 17 punkta demantur er 0,17 karöt, en kerfið er keimlíkt metrakerfinu á þann hátt að 100 punktar eru samtals 1 karat.
Hringurinn er kúptur að innan svo gott er að bera hann. Áletrun fylgir.
Hægt er að skoða úrvalið í verslunum okkar Kringlunni og Smáralind.
Netpantanir eru að jafnaði afgreiddar næsta virka dag frá kaupum. Ef pöntuð er áletrun á hlut lengist afgreiðslufresturinn um fimm virka daga. Þú færð tölvupóst frá okkur um leið og pöntunin er tilbúin til afhendingar í verslunum okkar eða þegar við komum henni í hendur flutningsaðila sem sér um að koma pöntuninni á áfangastað.