
4 mm giftingarhringur með demöntum
JR-404-H-9p-50
Hringurinn er smíðaður úr 14 karata hvítagulli og er 4 mm á breidd. Í hringnum eru þrír 3 punkta demantar samtals 9 punktar í TW VVS1 gæðum.
Þegar talað er um stærð (og þar með þyngd) demanta er ýmist notast við karöt eða punkta. 9 punkta demantur er 0,09 karöt, en kerfið er keimlíkt metrakerfinu á þann hátt að 100 punktar eru samtals 1 karat.
Hringurinn er kúptur að innan svo gott er að bera hann. Áletrun fylgir.
Hægt er að skoða úrvalið í verslun okkar Kringlunni og Smáralind.
Netpantanir eru að jafnaði afgreiddar næsta virka dag frá kaupum. Ef pöntuð er áletrun á hlut lengist afgreiðslufresturinn um fimm virka daga. Þú færð tölvupóst frá okkur um leið og pöntunin er tilbúin til afhendingar í verslunum okkar eða þegar við komum henni í hendur flutningsaðila sem sér um að koma pöntuninni á áfangastað.