Kertaslökkvari með íslenskum steini
KE-01-MU
Kertaslökkvarinn er handunninn úr eðalstáli skreyttur íslenskum mugearit steini. Kertaslökkvarinn hindrar að vax leki og að það rjúki úr kveiknum þegar slökkt er á kertunum. Slökkvarinn er 19 cm á lengd. Hönnuðir eru Berglind Snorra og Jón Snorri Sigurðsson. Ath. hver steinn er einstakur og lítur því ekki nákvæmlega eins út og á myndinni. Ástæðan er sú að steinarnir eru mótaðir af náttúrunni.
Netpantanir eru að jafnaði afgreiddar næsta virka dag frá kaupum. Ef pöntuð er áletrun á hlut lengist afgreiðslufresturinn um fimm virka daga. Þú færð tölvupóst frá okkur um leið og pöntunin er tilbúin til afhendingar í verslunum okkar eða þegar við komum henni í hendur flutningsaðila sem sér um að koma pöntuninni á áfangastað.