
Demantshálsmen
JP-659-G-10p-gullfesti
Hálsmenið er handsmíðað úr 14 karata gulli með 10 punkta demanti í TW VS1 gæðum. Hæð mensins er um 26 mm.
Þegar talað er um stærð (og þar með þyngd) demanta er ýmist notast við karöt eða punkta. 10 punkta demantur er 0,1 karöt, en kerfið er keimlíkt metrakerfinu á þann hátt að 100 punktar eru samtals 1 karat.
Hönnuður og smiður er Jón Snorri Sigurðsson.
Netpantanir eru að jafnaði afgreiddar næsta virka dag frá kaupum. Ef pöntuð er áletrun á hlut lengist afgreiðslufresturinn um fimm virka daga. Þú færð tölvupóst frá okkur um leið og pöntunin er tilbúin til afhendingar í verslunum okkar eða þegar við komum henni í hendur flutningsaðila sem sér um að koma pöntuninni á áfangastað.