
Gullhálsmen með demanti
JP-657-G-5p
Hæalsmenið er handsmíðað úr 14 karata gulli með 5 punkta demanti í TW VS1 gæðum. Hæð mensins er um 20 mm.
Þegar talað er um stærð (og þar með þyngd) demanta er ýmist notast við karöt eða punkta. 5 punkta demantur er 0,05 karöt, en kerfið er keimlíkt metrakerfinu á þann hátt að 100 punktar eru samtals 1 karat.
Hönnuður og smiður er Jón Snorri Sigurðsson.
Netpantanir eru að jafnaði afgreiddar næsta virka dag frá kaupum. Þú færð tölvupóst frá okkur um leið og pöntunin er tilbúin til afhendingar í verslunum okkar eða þegar við komum henni í hendur flutningsaðila sem sér um að koma pöntuninni á áfangastað.