Gáru hálsmen - gull - Small
JP-616-G-S
Hálsmenið myndar hring sem táknar gáru. Gárurnar er hægt að fá í fjórum stærðum sem hver fellur inní aðra eins og gárur á vatni. Gárurnar koma í margskonar útfærslum með nánast endalausum samsetningar möguleikum. Þannig er hægt að láta samsetninguna tákna eitthvað persónulegt, eins og fjölskyldumeðlimi, vini eða tímamót.
Viltu bæta við fleiri Gárum á þetta hálsmen?
Smelltu hér og hannaðu þitt eigið Gáruhálsmen.
Gáran er handsmíðuð úr 14 karata gulli og er um 12 mm í þvermál eða stærð S. Stærðirnar sem eru í boði eru XS S M og L.
Hönnuður er Berglind Snorra.
Þegar gengið er frá pöntun á gáru hálsmeni má gjarnan taka fram í hve margar öskjur á að pakka meninu/menunum í reitinn "athugasemd með pöntun".
