Gáru hálsmen - gull með demanti - Small
JP-616-G-DE-S-5p
Hálsmenið myndar hring sem táknar gáru. Gárurnar er hægt að fá í fjórum stærðum sem hver fellur inní aðra eins og gárur á vatni. Gárurnar koma í margskonar útfærslum með nánast endalausum samsetningar möguleikum. Þannig er hægt að láta samsetninguna tákna eitthvað persónulegt, eins og fjölskyldumeðlimi, vini eða tímamót.
Viltu bæta við fleiri Gárum á þetta hálsmen?
Smelltu hér og hannaðu þitt eigið Gáruhálsmen.
Gáran er handsmíðuð úr 14 karata gulli með 5 punkta demanti í TW VS1 gæðum.
Þegar talað er um stærð (og þar með þyngd) demanta er ýmist notast við karöt eða punkta. 5 punkta demantur er 0,05 karöt, en kerfið er keimlíkt metrakerfinu á þann hátt að 100 punktar eru samtals 1 karat.
Gáran er um 12 mm í þvermál eða stærð S.
Hönnuður er Berglind Snorra.
Þegar gengið er frá pöntun á gáru hálsmeni má gjarnan taka fram í hve margar öskjur á að pakka meninu/menunum í reitinn "athugasemd með pöntun".
